Leita í fréttum mbl.is

Boston

Þá er maður mættur til Braintree. Hræddur um það. Ég átti von á að hótelið mitt væri nær miðborg Boston, en svo er klárlega ekki. En þetta er fínt, stutt á áfangastað, og við hliðina á hótelinu er fantafínt úrval af mörgu því besta sem sameinuð ríki Ameríku hafa upp á að bjóða; hér er m.a. risastór verslunarmiðstöð og allir hugsanlegir skyndibitastaðir veraldar. Fékk mér einmitt bita á barnum á Fridays áðan. Skemmtileg úthverfastemning hérna.

Já ég er að lifa því hér í Braintree.

Ætla að vakna klukkan sex í fyrramálið og taka lestina til Harvard og fá mér morgunmat. Leitt að Natalie er búin með sálfræðina. Leitt fyrir hana. Mjög leitt.


Pælingar á sunnudagsmorgni

1. Ef ég hleyp bara nógu hægt þá kemst ég vonandi tíu kílómetrana næstu helgi

2. Ef ég labba nógu hægt þá kemst ég vonandi upp á Kilimanjaro tveimur helgum síðar

Svo erum við að plana síðustu átta dagana við miðbauginn. Tveir ólíkir kostir hér að neðan, báðir góðir:

Rólegheit á áhugaverðum stað eftir gönguna og safaríið...:
http://www.peponi-lamu.com/index.html

Ævintýri og frumskógarleikir, eftir gönguna og safaríið...:
http://www.gorillatours.com/home.html

Og klukkan er ekki einu sinni orðin tólf.


Innflutningshugmynd dagsins

Vissuð þið: að það er til hljómsveit sem syngur bara lög hljómsveitarinnar Aerosmith, og að sögn gera þeir það ennfremur frekar illa. Hljómsveitin mun heita Arrow Smith.

Snilld eða hvað


gunther

sælar og sælir,

 ég veit það er útilega framundan en ég er búinn að vera að möndla smá skít í milliveginum (in the mid way) .....

 ... semsagt þá er ég að fara að stauja kortið mitt fyrir Gunther 1. Septmember  og ykkur (cyberg meðlimum) er öllum boðið.

 

svo við skulum segja að 1. sept sé dagur daganna fyrir sæberg.

hlakka til að sjá ykkur alla þar.

: hér eru meðfylgjandi nokkur video af gaunum sem mun trylla lýðinn.

http://youtube.com/watch?v=v3sNARLNu_Y

http://youtube.com/watch?v=YhTfYaYL01Q

http://youtube.com/watch?v=K9lR5Uz-s4g&mode=related&search=

 http://youtube.com/watch?v=46T35NlaPG0&mode=related&search=

 

ps farið inn á youtube.com og leitið að gunther!!!!

 

 ef þið getið ekki horft þá er nafnið; kristinnsvanur

og lykilorðið : center

 

kv ,

Svanur


Þeir voru dagarnir

Ég rambaði inn á nýja vefsíðu Silfur Egils, þar sem Egill skrifar um nýja bók um Churchill:

http://eyjan.is/silfuregils/category/oflokka%c3%b0/

Það sem mig langaði, í framhaldi af því, að linka á er þessi ræða Churchill hér að neðan. Það þarf að leggja nokkuð vel við hlustir, en það er ansi magnað að geta bara flett svona tímamótaræðum upp á netinu...

http://www.youtube.com/watch?v=belzgoxfayo

Hlustið á þetta. Og farið svo að hugsa um útileguna um helgina.


Rólegir dagar

Það er rólegt yfir síðunni. Það á líka að vera rólegt hérna yfir sumartímann. Menn dvelja langtímum úti í góða veðrinu og munda göngustafi, golfkylfur og veiðistangir. Sumir renna fyrir í ám landsins, aðrir henda út neti á laugaveginum og enn aðrir reyna beituna á suðrænum slóðum. Summertime.

En hvernig er það... Eru menn á leið í útilegu?

Hvert verður farið? Hvað verður gert? Hver sér um tréið? Hverjir fara með?

Er ekki málið að vekja þetta "kommentakerfi" til lífsins?

 


Líf annarra - og Ye men, einhver?

Herrar mínir og frúr.

Í kvöld fór ég í bíó. Sá kvikmyndina Líf annarra, sem er þýsk og ber þýskan titil sem ég myndi klúðra. Eflaust eru mörg ykkar, og sem allra flest vonandi, búin að sjá þessa mynd. Mér fannst hún einstaklega góð, allt við hana, meira að segja tungumálið. Mjög áhrifamikil. Sjáið hana. Sjáið hana. Sjáið hana.

Fyrr í vikunni var ég í París. Fór þangað í gegnum London og var samanburðurinn mjög París í hag. Ef ég væri í þannig skapi og þannig skapaður hefði ég samið lagið Pilsin í París um þessa stuttu heimsókn. Ó já... brosmild hjólandi pils í sólinni (það gleður nánast alltaf aumt augað), hugsandi pils sitjandi á bekkjum, þreytt pils í lestum á leið úr vinnunni, sæt pils að afgreiða mig á kaffihúsi, gul pils, græn pils, hvít pils, stutt pils, síð pils... það er bara eitthvað við París í volgri sólinni.

General Hamid Omer

Seint á miðvikudagskvöldið fór ég á hótelbarinn til að sækja tvo bjóra fyrir mig og Hákon. Aldrei þessu vant kom ég til baka með hershöfðingja. Já þetta kvöld kynntist ég Hamid Omer, hershöfðingja í flugher Yemen á sunnanverðum Arabíuskaga. Hamid er brosmildur og vel haldinn maður um sextugt og áttum við afar skemmtilegt spjall. Hamid vissi ýmislegt um Ísland og hafði frá ýmsu að segja um sitt merkilega land. Ég las einmitt bók sem gerist í Yemen á dögunum, Motoring with Mohammed, sem Hamid hafði einmitt lesið líka. Alveg frá því að ég las þessa bók hef ég verið að gæla við þá hugmynd að heimsækja þetta land. Og mig grunar að Hamid sé einmitt rétti maðurinn til að þekkja þegar maður heimsækir Yemen. Í umræddri bók verður sögumanninum tíðrætt um gestrisni heimamanna, og við Hákon fengum að finna fyrir gestrisnum faðmi hershöfðingjans. Þannig er ég nú með einlægt boð um gistingu á heimili Hamids í Sana´a, höfuðborg Yemen, "whenever you want! I´m retiring so you have to come and visit me". Hann nefndi að húsið væri á sjö hæðum þannig að það væri nægt pláss fyrir mig og vini mína. Held ég setji þetta á fimm ára planið. Jafnvel þriggja ára planið.

Ég veit ekki með yemenska herinn, en Hamid er óvitlaus og sjarmerandi maður, og við látum hans ágætu orð vera þau síðustu sem hér verða skrifuð í kvöld:

"People are always building houses. I enjoy much more building friendships."

Sana´a í Yemen er annars ansi mögnuð borg. M.a. á heimsmynjaskrá UNESCO:

sana4


Getraun vikunnar

Hvað eiga þessi lönd sameiginlegt:

Grænhöfðaeyjar
Kúba
Írak
St. Vincent / Grenadines
Gabon
Kanada
Frakkland

???????? 


Tryggingafélög

Vil bara koma því á framfæri að ef það er brotist inn í bílinn ykkar, þar sem notaður er lykill sem er nógu líkur lyklinum af bílnum að hann virkar og fartölvunni ykkar stolið, þá er ekki nóg að kalla lögguna á svæðið, taka skýrslu og tilkynna það til tryggingafélagsins ykkar.

"Rétti" hluturinn er semsagt að keyra bílinn heim í innkeyrslu heima hjá ykkur, brjóta rúðu um miðja nótt, eða fá einhvern til að brjóta rúðuna, kalla svo á lögguna og þá fær maður tölvuna bætta.

Munið þetta grísalingar,

kveðja,

Svanur


Rennandi blautur og góður dagur

Það var eitthvað hressandi við rigninguna í dag.
Nema það hafi verið kaffið á nýja kaffistaðnum á Skólavörðustígnum klukkan átta í morgun.
Nei það var rigningin. Í hvert skipti í dag sem ég gekk út í rigninguna fannst mér hún hressandi. Og mér finnst rigning alls ekki alltaf hressandi. Ég var meira að segja frekar kátur með regnið áðan þegar ég stóð úti, á móti fossinum, að fylla bensín á bílinn fyrir 6.500 kall.

Já hún vakti mig rigningin. Og þetta er góður tími til að vakna. Svona í upphafi sumars. Eða rétt áður en sumarið byrjar, eða hvernig sem það nú verður. Ekki það að ég hafi verið steinsofandi áður, en er maður ekki alltaf sofandi að einhverju leyti?

Það sem ég er að reyna að segja er að ég er vakandi. Glaðvakandi. Og mér finnst rigningin góð.

bill-patzert-rain-browse


Morgunmatur

Morgunmatur á fimmtudaginn og útlit fyrir 100% mætingu. Það væri afrek og jafnframt virkilega skemmtilegt.

En hvað segja menn með læsinguna á síðunni. Er einhver stemning fyrir því?


Óhugguleg frétt

Kiddi, Brjánsi. Mér líst ekkert á þetta. Maður þakkar fyrir að Kiddi er Strawberry Blonde og 2 metrana hans Brjánsa.

rautt


hvað segið þið um þetta?

Sælir, hérna er dæmi af nýju heimasíðunni sem ég er að smíða með www.kapital.is  , haldið þið að það geti verið fyndið ef ég segi af sannsögli og hreinskylni frá lífi mínu, sem hefur verið um margt athyglisvert, ásamt myndum og video og látum?   Hérna er dæmi um sögurnar sem verða á síðunni:  Ég var svo happy, þegar ég kom á hótelið lagðist ég á götuna og öskraði Liverpool, Liverpool, You will never walk alone. En einn leigubílstjórinn á þessarri hliðagötu var ekki sáttur þannig að hann réðst á mig og kýldi mig. Ég var ekki með nein leiðindi, enda kann ég það ekki, sérstaklega þegar ég var svona ógeðslega happy. En gaurinn hljóp að mér og kíldi mig, þar sem ég lá og söng. Held ég hafi ekki hætt að syngja þrátt fyrir höggið. Svo kom löggan upp úr þurru og ég hélt áfram að syngja... svo ógeðsleg happy. Löggan gekk að mér, þar sem ég sat á gangstéttinni og söng. Ég hafði fært mig af götunni eftir höggið og sat bara í hægindum fyrir utan hótelið (hóruhúsið) mitt og söng “Rafa Benitez, Rafa Benitez... Rarararafa benitez Xabi alonso osfrv”  Löggan gekk upp að mér og bað mig um að koma með sér inn í bíl, ég var í svo mikilli sigurvímu að það mætti halda að ég hefði verið útdópaður, þannig að ég bað þá um að bíða augnablik, hljóp inná hótelherbergið mitt, náði í töskuna mína, hljóp aftur út og sagði þeim “take me to the station, I want to go to prison.” Reyndi að opna skottið á löggubílnum en náði því ekki, enda var þetta einhver Opel bifreið, svo ég settist bara í aftursætið með töskuna mína, tilbúinn fyrir Tyrkneskt fangelsi. Þetta var mjög súrrealískt því löggan vildi allsekki að ég væri inni í bílnum, þeir voru bara að reyna að vera góðir við vitlausa útlendinginn. Þannig að þegar ég bað þá um að færa mig í Jailið þá urðu þeir dáltið fúlir, því þeir höfðu greinilega skipanir um að bögga ekki aðdáendur liðanna sem voru að skemmta sér. 

Sýrlenska reynslan held ég að hafi spilað dálítið þarna inn. Því eftir að hafa verið stungið í fangaklefa svona 25 sinnum á Sýrlandi var ég byrjaður að rífa kjaft. Og satt best að segja þá virkaði það. Ég vissi reyndar alltaf að ef það kæmi að Jack Bauer mómentum þá hafði ég ákveðnar setningar tiltækar eins og “hey don´t fuck with me I know the president of Iceland” og “Hey take that electric thing off my balls, I´ve got friends in high places in the World Whale Commission”

kveðja,

Svanur


DAGURINN Í DAG!

Ég er ekki í Aþenu, djöfullinn hafi það!

 Framsókn er ekki í ríkisstjórn, djöfullinn hafi það!

 Itv keypti myndbandið mitt, en ég er ekki ríkur, djöfullinn hafi það!

 

Hinsvegar er ég hamingjusamur, spenntur og gersamlega að fíla daginn í dag, sem er virkilega góður dagur! djöfullinn hafi það!

 mæli með 2 linkum til að koma sér í stuðið!

http://www.esnips.com/doc/8fbf4e84-d2c5-484e-a837-a5f3599061af/Gerry-and-the-Pacemakers---Youll-never-walk-alone

þar sem er boðið upp á 3 útgáfur af laginu okkar, m.a. með Sinatra og Elvis auk hinna einu sönnu Gerry and the Pacemakers.

 og síðast en ekki síst, þá er það myndbandið mitt, sem ég er að skoða í fyrsta skipti í dag síðan ég setti það á netið, og ég er með tárin í augunum af gleði, upprifjun og hrifningu.

 http://youtube.com/watch?v=_5OqBHH8wTs

 

C´MON YOU FUCKING REDS, YNWA!!!!! 

 


Álagsmeiðsli

Er að glíma við erfið álagsmeiðsli. Setti nýverið af stað stíft æfingaprógram í gítarleik og er sár á þremur fingrum vinstri handar. Virkilega sár. Verði ég svo lánsamur að geta glamrað mig í gegnum eitt lag fyrir árslok verð ég meira en sáttur. Þetta er klárlega flóknara en ég hélt.

Tók gott hlaup í gær með hlaupahópi Glitnis, Stebba og Guggu. Það verður seint sagt að það sé gaman að hlaupa, en það er vissulega gefandi. Við skiluðum okkur í mark á endanum og nú er ég bjartari en áður að ég nái að skila mér í mark að loknum hálfmaraþoninu í ágúst. Það er ljóst að ég mun ekki vanmeta vinnuna við að setja saman "playlistann" í iPodinum fyrir það hlaup. Hann verður mikilvægari en skórnir.

Annars langaði mig að varpa fram þeirri spurningu hvort við ættum að fara að dæmi Tönsberg stelpnanna og læsa síðunni okkar? Ég held að það gæti verið gaman að prófa það. Fjölmargir lesendur síðunnar verða bara að vera óhræddir við að óska eftir lykilorðinu....

Já eða nei í kommentakerfinu fram til morgundagsins!!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Færsluflokkar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband